Franskar, koggi og maður að nafni Franz - Spurningaþraut #9
Spurningaþraut Vikublaðsins #9
-
Karlinn geðþekki á myndinni hér að ofan var þingmaður fyrir Norðurland eystra 1979-1999. Hann gegndi líka tveimur ráðherraembættum frá 1987-1991. Hver er maðurinn? Og nefnið a.m.k. Annað ráðherraembættið til að fá stig. Sérstakt gáfumannastig fæst fyrir bæði embættin.
-
Mjölkursamlag KÞ framleiddi á síðustu öld dýrindis mjólk og aðrar mjólkurvörur við góðan orðstýr. Hús samlagsins stendur þó enn og er þar ýmis starfsemi, meðal annars drykkjaframleiðsla. En hvers konar drykkir eru framleiddir í gömlu mjólkurstöðinni á Húsavík?
-
Nemo og Dóra eru fiskar sem unga kynslóðin kannast eflaust vel við og vonandi foreldrar þeirra. En hvaða fyrirtæki framleiddi teiknimyndirnar um þessa fiska?
-
Hvaða ár var Íþróttafélagið Magni á Grenivík stofnað? Skeika má tveimur árum til eða frá.
-
Franskar kartöflur eru góður matur. Sagt hefur verið um franska að þær séu fullkomin verkfæri til að moka upp í sig kokteilsósu, sem er enn þá betri. En hvað er talið vera upprunaland franskra kartaflna?
-
Hvað í ósköpunum er safabóla?
-
Myanmar, Sýrland, Lesótó og Líbanon eru allt lönd í Asíu… nema eitt, hvað er það?
-
Frans Ferdinand krónprins Austurríkis – Ungverjalands og erkihertogi af Auturríki-Este var myrtur ásamt eiginkonu sinni28. Júní árið 1914. Sá atburður er gjarnan talinn vera neistinn sem hrinti af stað fyrri heimsstyrjöldinni. En hver var það sem myrti erkihertogann?
-
Fréttablaðið var mest lesna Dagblað landsins áður en það lagði upp laupanna fyrr á þessu ári. Nú hefur Morgunblaðið endurheimt toppsætið en hvað ár kom Morgunblaðið fyrst út?
-
Hvað hét fyrsti ritstjóri Morgunblaðsins?
---
- Maðurinn er Guðmundur Bjarnason en hann var heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1987–1991 og landbúnaðar- og umhverfisráðherra 1995–1999.
- Bjór.
- Pixar framleiddi þær fyrir Disney en nóg er að nefna Pixar.
- Árið 1915, þannig að rétt telst 1913-1917.
- Flestar heimildir benda til að franskar kartöflur hafi fyrst verið matreiddar á landsvæði sem nú tilheyrir Belgíu. Aðrar halda því fram að þær hafi fyrst komið fram á Spáni og sá siður að djúpsteikja þær hafi síðan flust til þess hluta Niðurlanda sem þá var undir spænskri stjórn. Við treystum því að Belgía sé rétt svar.
- Safapóla er frumulíffæri í plöntufrumum.
- Lesótó.
- Gavrilo Princip hét kauði.
- 1913.
- Vilhjálmur Finsen.