Framsýn stéttarfélag fordæmir innrás Rússa í Úkraínu
Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar stéttarfélags samþykkti á fundi sínum í gær að fordæma stríðsrekstur Rússa í Úkraínu. Í yfirlýsingu Framsýnar kemur meðal annars fram að innrás og ógnartilburðir Rússalands i Úkraínu eigi sér enga réttlætingu. Framsýn krefst þess að Rússar stöðvi þegar í stað hernaðaraðgerðir sem þegar hafa valdið miklum hörmungum.
„Framsýn stéttarfélag fordæmir harðlega innrás Rússlands inn í annað sjálfstætt og fullvalda ríki með tilheyrandi eyðileggingu og þjáningu sem slík innrás óhjákvæmilega veldur saklausu fólki sem verður fyrir barðinu á stríðsrekstri Pútíns.
Hugur Framsýnar er hjá Úkraínsku þjóðinni sem á um sárt að binda um þessar mundir, en ekki síður hjá þeim Úkraínumönnum er lifa og starfa í öðrum þjóðlöndum, óttast um afdrif ættingja og vina en geta á engan hátt komið þjóð sinni til hjálpar. Framsýn biðlar til íslenskra stjórnvalda að þau greiði götu flóttafólks frá Úkraínu sem neyðist til að flýja land sitt og hingað leitar, um leið og stjórnvöld komi skýrum skilaboðum á framfæri við Rússa að þeir afvopnist þegar í stað og hypji sig heim til Rússlands,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.