Framkvæmdum í Gilinu að ljúka

Gilið. Mynd/Akureyri.is
Gilið. Mynd/Akureyri.is

Framkvæmdum við endurbætur á gönguleiðum í Listagilinu á Akureyri er að ljúka í bili og er því gilið orðið opið að fullu fyrir umferð. Búið er að leggja nýtt malbik niður Listagilið að Drottningarbraut. Einnig hefur verið lögð ný hellulögn frá torginu fyrir framan hótel KEA að horni Kaupvangsstræti 23 og frá bílastæðinu þar fyrir ofan og upp að gatnamótum Eyrarlandsvegar.

Er þetta liður í því að draga úr umferðarhraða og auka vægi gangandi vegfarenda á svæðinu, segir á vef Akureyrarbæjar.

Nýjast