20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Framkvæmdir hafnar í Móahverfi
Framkvæmdir við Lækjarmóa 2-8 í nýju Móahverfi ofan Síðuhverfis eru hafnar en þar reisir verktakinn SS Byggir fjögur fjölbýlishús með 72 íbúðum.
Í Móahverfi verða um 1.100 íbúðir sem hýsa munu um 2.400 manns. Nú þegar hefur 11 lóðum fyrir um 270 íbúðir verið úthlutað og senn verður birt auglýsing um úthlutun rað-, par- og einbýlishúsalóða vestast og efst í hverfinu.
Halla Björk Reynisdóttir, formaður skipulagsráðs, segist skynja mikinn áhuga á því að taka þátt í uppbyggingu á Akureyri og að hröð uppbygging á nýjum íbúðahverfum á undangengnum árum sé til vitnis um það.
„Eftirspurn eftir nýju íbúðahúsnæði hefur verið meiri en framboðið hér á Akureyri eins og víða annars staðar í fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Uppbyggingu lýkur brátt í Hagahverfi og Holtahverfið er óðum að rísa. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það verður eftirsótt að búa og eignast húsnæði í Móahverfi því skipulag hverfisins er metnaðarfullt og stutt í alla þjónustu,“ segir Halla Björk Reynisdóttir.
Hér má lesa frétt um fyrstu skóflustunguna í Móahverfi sem tekin var 25. september 2023.
Frá þessu segir á heimasíðu Akureyrarbæjar.