13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Frægasta jólafuran?
Á aðventunni voru feðgarnir Bradley og Barney Walsh meðal þeirra fjölmörgu sem heimsóttu Laugalandsskóg til að höggva sitt eigið jólatré.
Athöfnin var tekin upp og sýnd í þættinum Bradley and Barney : Breaking Dad at Christmas á sjónvarpsstöðinni ITV í Bretlandi á sjálft aðfangadagskvöld. Gert er ráð fyrir að um 20 milljón manns hafi fylgst með gjörningnum.
„Þeir feðgar ásamt fylgdarliði, um 40 manns, voru afar viðkunnanlegir og viðræðugóðir, sungu jólalögin og þáðu að sjálfsögðu rjúkandi ketilkaffiog popp þegar draumatréð var fundið,“ segir á fésbókarsíðu Skógræktarfélags Eyfirðinga.
„Þessi knáa eyfirska stafafura hefur semsagt lagt heiminn að fótum sér og fyrir ykkur sem eigið nú furu af Þelamörkinni í stofunni heima, bíðið með að senda hana til kurlunar eftir jól, hún gæti hækkað í verði í janúar.“
Bradley and Barney: Breaking Dad at Christmas - S01E01 - YouTube