20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Frábær árangur DSA - Listdansskóla Akureyrar í undankeppni Dance World Cup
Þær gerðu það sannarlega gott stelpurnar frá DSA - Listdansskóla Akureyrar sem tóku þátt í undankeppni heimsmeistaramótsins Dance World Cup sem fram fór í Borgarleikhúsinu s.l. mánudag.
Stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu með glæsibrag í flokknum söngur og dans með 85 stigum! Þar að auki komu þær heim með fjögur silfur og eitt brons. Yngsti keppandinn var aðeins 6 ára og fór heim með hvorki meira né minna en þrjú verðlaun.
Rakel Heiða 9 ára og Agnes Emma 6 ára að stíga inn á svið í flokki söng og dans þar sem þær fengu 84,3 stig
Heimsmeistaramótið verður haldið í Prag í sumar, og hafa öll atriði DSA unnið sér inn keppnisrétt. Þetta er í fimmta sinn sem DSA - Listdansskóli Akureyrar tekur þátt í Dance World Cup en þar koma saman rúmlega 100.000 börn frá 50 löndum.