Forsetinn hittir Gellur á Akureyri
Myndlistarhópurinn Gellur sem mála í bílskúr varð til á námskeiðinu „Fræðsla í formi og lit“ hjá Bryndísi Arnardóttur, Billu, myndlistarkonu á Akureyri sem lést árið 2022, langt fyrir aldur fram.
Fram kom sú hugmynd hjá hópnum að setja upp myndlistarsýningu í minningu Billu og fá einnig til liðs fleiri nemendur sem höfðu sótt sama námskeið hjá henni.
Billa var menntaður myndlistarmaður og með meistaragráðu í kennslufræðum listgreina. Hún stofnaði m.a. Listfræðsluna, myndlistarskóla fyrir almenning og var frumkvöðull í að fá viðurkenningu á einingarbæru myndlistarnámi með námskeiðinu.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson var á ferð á Akureyri á dögunum og þáði hann heimboð á heimili myndlistarmannsins Guðmundar Ármanns þar sem nokkrar gellur og fleiri úr stórum hópi nemenda Billu tók einnig á móti honum. Þar fékk forsetinn að heyra af áformum hópsins um sýninguna sem verður opnuð helgina 10. – 12. nóvember næstkomandi, en alls eru um 30 manns með myndir á sýningunni.
Við þessi tímamót mun fjölskylda Billu setja á laggirnar styrktarsjóð til minningar um Billu og mun helmingur af öllum seldum verkum á sýningunni renna í þennan sjóð.
Barnabarn Billu, Ronja Axelsdóttir van de Ven sagði forsetanum frá þessum áformum en hugmyndin með sjóðnum er að styrkja sérstaklega konur sem vilja fara í formlegt nám í sjónlistum. Forsetinn var því formlega sá fyrsti sem fékk kynningu á sjóðnum og tilgangi hans.
Listrænn stjórnandi sýningarinnar er Guðmundur Ármann myndlistarmaður en Billa og Guðmundur Ármann voru samstarfsfélagar og vinir og áttu m.a. stóran þátt í að byggja upp öfluga myndlistardeild við Verkmenntaskólann á Akureyri auk þess sem mikill fjöldi áhugafólks um myndlist hefur sótt hjá þeim námskeið í gegnum tíðina. Stundin var indæl og nutu bæði forsetinn og aðrir samverustundar og spjalls.
Norðurorka og KEA styðja við uppsetningu sýningarinnar og eru allir hvattir til að koma, skoða og taka þátt. Sýningin verður sett á tveimur stöðum, í Deiglunni og í Mjólkurbúðinni og verður eins og áður sagði opin dagana 10. – 12. nóvember næstkomandi.