30. október - 6. nóember - Tbl 44
Flúgandi hálka förum varlega
03. nóvember, 2023 - 08:55
Gunnar Níelsson - gunnar@vikubladid.is
Lögreglan á Norðurlandi sendi frá sér rétt í þessu tilkynningu þar sem varað er við mikilli hálku og hvetur vegfarendur til þess að sýna aðgát sem við skulum gera.
,,Kæru norðlendingar !
Nú í morgunsárið eru varhugaverðar aðstæður í veðráttunni. Það rignir ofan á ísilagða vegi, götur og gangstíga um allt embættið, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Förum með gát og sýnum sérstaka aðgæslu bæði akandi og gangandi. Komum heil heim og megið þið eiga góða helgi.!"
Nýjast
-
Fjármagn í hugmyndavinnu við 50 metra innilaug áætluð árið 2028
- 02.11
Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ segir að í framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar sé gert ráð fyrir fjármagni árið 2028 til að fara í formlega vinnu við að skoða möguleika og hugmyndir um 50 metra innisundlaug á Akureyri. „Það verður spennandi og skemmtilegt verkefni,“ segir hann. Um tíðina hafi af og til verið umræður við og innan Akureyrarbæjar um hugmyndir um nýja 50 metra innisundlaug. -
Sálfræðingur með merkan feril í Fantasy Premier League að baki
- 02.11
Vísindafólkið okkar — Árni Gunnar Ásgeirsson Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á vísindafólkinu okkar. Árni Gunnar Ásgeirsson, deildarforseti Sálfræðideildar, er vísindamanneskjan í október. -
Gleðilega töfrandi kosningabaráttu
- 02.11
Snörp og spennandi kosningabarátta er að hefjast og eru stjórnmálaflokkar í óðaönn að draga fram helstu stefnur og forgangsmál. Ýmislegt bendir til þess, eins og oft áður, að komandi kosningar muni að þónokkru leyti snúast um efnahagsmál og fjármál heimila og fyrirtækja. Verðbólga og vextir bíta fast og fólk vill svör um framtíðina. Eðlilega. -
Geðverndarfélag Akureyrar fagnar 50 ára afmæli
- 01.11
„Geðverndarfélag Akureyrar hefur ekki verið mjög áberandi undanfarin ár, en á sér engu að síður merka sögu og hefur staðið fyrir mikilvægum framförum í geðheilbrigðismálum í bænum og ýmislegt sem til bóta er í þessum viðkvæma málaflokki,“ segir Valdís Eyja Pálsdóttir formaður Geðverndarfélags Akureyrar. Félagið var stofnað 15. desember árið 1974 og verður því 50 ára gamalt innan tíðar. Haldið verður upp á tímamótin næstkomandi laugardag. -
Verðandi sjávarútvegsfræðingar kynna sér starfsemi Samherja til sjós og lands
- 01.11
Hátt í fjörutíu nemendur í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri hafa á undanförnum dögum heimsótt skip og landvinnslu Samherja. Nemendur auðlindadeildar skólans hafa um langt árabil átt þess kost að skoða og kynnast starfsemi félagsins, sem hluta námsins. Magnús Víðisson brautarstjóri segir afar mikilvægt að öflug sjávarútvegsfyrirtæki séu starfandi í námunda við skólann, sem geri nemendum kleift að kynnast betur sjávarútvegi og haftengdri starfsemi. -
Aðeins fleira fé slátrað þetta haustið miðað við í fyrra
- 01.11
„Heilt yfir hefur gengið mjög vel, auðvitað hafa rafmagnstruflanir, nettruflanir, veðurtruflanir og ýmislegt af því tagi, stungið sér niður hjá okkur, en sem betur fer gekk allt upp að lokum,“ segir Sigmundur Hreiðarsson framleiðslustjóri Kjarnafæði Norðlenska á sláturhúsinu á Húsavík. -
Að þora að vera hræddur
- 01.11
Nú haustar og í haustmyrkrinu leynast oft myrkraverur og alls konar furðuleg fyrirbæri sem skjóta okkur stundum skelk í bringu. Flest tengjast þau reyndar hrekkjavöku og ýmiskonar skálduðum hryllingi þannig að það er lítið mál að sýna hugrekki og láta sem ekkert sé. Eða hvað, erum við kannski hræddari en við sýnumst, og hvenær erum við annars hugrökk? -
Ferðast landa á milli til að taka þátt í lotu Viðskiptadeildar
- 31.10
Í þarsíðustu viku var lota hjá Viðskiptadeild og þá gafst stúdentum tækifæri á að hitta kennara, samstúdenta og annað starfsfólk Háskólans. Þannig tengjast þeir betur innbyrðis og í lotum er horfið frá hefðbundinni kennslu, til dæmis með því að bjóða gestum úr atvinnulífinu að vera með innlegg í námskeiðum. -
Gefur lífinu aukalit og við hefðum alls ekki viljað missa af honum
- 31.10
„Rúben hefur verið okkur dýrmætur kennari í lífinu og gefið því fallegan auka lit. Við hefðum alls ekki vilja missa af honum,“ segir Arnheiður Gísladóttir móðir Rúbens Þeys, sem fæddist í janúar árið 2020, með Downs heilkenni. Október er mánuður vitundarvakningar um Downs heilkenni á alþjóðavísu. Einstaklingar sem fæðst hafa með heilkennið hafa fylgt mannkyni frá upphafi vega. Þeim fer fækkandi og um tíma hélt Arnheiður að Rúben Þeyr yrði með þeim síðustu hér á landi sem fæddist með heilkennið. Sú hafi þó ekki orðið raunin. Faðir Rúbens er Vífill Már Viktorsson smiður og átti Arnheiður fyrir Karítas Von sem verður 11 ára gömul í nóvember. Fjölskyldan býr á Akureyri.