Fjölskyldutímar í Íþróttahöllinni

Fjölskyldutímarnir eru ætlaðir börnum og ungmennum á grunnskólaaldri, systkinum þeirra og forráðamön…
Fjölskyldutímarnir eru ætlaðir börnum og ungmennum á grunnskólaaldri, systkinum þeirra og forráðamönnum

Íþróttabærinn Akureyri býður uppá fjölskyldutíma í Íþróttahöllinni á völdum sunnudögum fram í desember. 

Fjölskyldutímarnir eru ætlaðir börnum og ungmennum á grunnskólaaldri, systkinum þeirra og forráðamönnum, til eiga saman góða samveru. Tímarnir eru í umsjón íþróttafræðinga en börn þurfa að vera í fylgd forráðamanna.

Fyrsti tíminn verður núna á sunnudaginn, 6. október kl. 09:30-11:00. Næstu tímar eru 13. október, 27. október, 3. nóvember, 24. nóvember og 8. desember.

Aðgangur ókeypis!

Nánar á Facebook-síðunni Heilsueflandi Akureyri á iði.

Nýjast