20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Fjölmenni fagnaði með sextugum Þelamerkurskóla
„Það skiptir sannarlega máli fyrir byggðalagið að hafa öflugan skóla og sveitarfélagið hlúir vel að skólamálum. Fjöldi aðstandenda og velunnara sem mætir á viðburði í skólanum og dvelur við, gefur til kynna að fólki þykir vænt um Þelamerkurskóla og mín tilfinning er sú að skólinn njóti velvildar í samfélaginu. Það er auk þess mjög ánægjulegt að sjá sveitunga sem eiga hvorki börn né barnabörn í skólanum sækja viðburði og sýna skólanum áhuga,“ segir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skólastjóri Þelamerkurskóla í Hörgársveit. Skólinn fagnaði 60 ára afmæli sínum með pompi og prakt í liðinni viku, en afmælisdagurinn er 5. desember.
Ragnheiður Lilja segir skólann stækka ört samhliða fjölgun íbúa í sveitarfélaginu, en nú eru nemendur við skólann um 100 talsins. Að skólastarfinu koma 29 starfsmenn þegar allt er talið og er þetta stærsti vinnustaður sveitarfélagsins.
Nemendur höfðu undirbúið afmælisdaginn á fjölbreyttan hátt með þemaviku nokkru áður þar sem þau lærðu um skáldin úr heimabyggð, bjuggu til pappamassaverk af skáldunum og myndverk af kirkjum sveitarinnar. Þau héldu úti fréttastofu, bjuggu til heimasíðu með fróðleik um sveitina, bökuðu mikið magn af bakkelsi til að bjóða afmælisgestum uppá, settu upp magnaða sögusýningu með allt að 60 ára gömlum minningum úr skólastarfinu, gáfu út veglegt skólablað, bjuggu til stuttmyndir úr þjóðsögum úr Hörgársveit og bjuggu til vegglistaverk sem táknar sveitina okkar.
Vel á þriðja hundrað gesta
Vel á þriðja hundrað gesta sóttu Þelamerkurskóla heim á afmælishátíðinni og nutu þess sem fyrir augu, eyru og munn bar. Kórinn söng fyrir afmælisgesti auk þess sem nemendur tónlistarskólans héldu úti lifandi tónlist á kaffihúsum þar sem nemendur buðu upp á veglegar veitingar. Tveir nemendur úr 7. bekk lásu upp ljóðið Skólasöngur Þelamerkurskóla og skólanum voru færðar góðar gjafir. Gamlir nemendur skólans, fyrrum starfsfólk og fjöldi aðstandenda gáfu sér góðan tíma til að skoða afrakstur af vinnu nemenda, rifja upp gamlar minningar og njóta samveru hvers annars. Á útiskólasvæðinu okkar í Mörkinni var boðið upp á varðeld, heitt kakó eða jólaglögg, grillaða sykurpúða og hangikjöt auk þess sem nemendur voru með leiðsögn um svæðið.
„Þetta var virkilega góður dagur og við, nemendur og starfsfólk erum afar þakklát öllum sem nutu dagsins með okkur,“ segir Ragnheiður Lilja.
Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skólastjóri Þelamerkurskóla
Vel á þriðja hundrað gesta sóttu afmælishátíðina og nutu þess sem fyrir augu, eyru og munn bar.
Kór skólans söng nokkur lög á afmælishátíðinni.
Á útiskólasvæðinu í Mörkinni var boðið upp á varðeld, heitt kakó eða jólaglögg, grillaða sykurpúða og hangikjöt
auk þess sem nemendur voru með leiðsögn um svæðið.