Fimm sóttu um stöðu rektors við Háskólan á Akureyri
Háskólaráð Háskólans á Akureyri auglýsti embætti rektors laust til umsóknar fyrr í haust. Umsóknarfrestur rann út 23. nóvember. Ráðið verður í embættið til fimm ára og er upphaf starfstíma 1. júlí 2024. Eftirtaldir aðilar sóttu um:
- Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Bates College, Lewiston, Maine
- Dr. Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri
- Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst
- Dr. Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi
- Dr. Sigurður Ragnarsson, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri
Háskólaráð Háskólans á Akureyri tilnefnir rektor í samræmi við 8. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 10. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 694/2022 og starfar rektor í umboði háskólaráðs. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs. Á næstu dögum mun Háskólaráð tilnefna þrjá fulltrúa í valnefnd til að meta hæfi umsækjenda.