Eyjafjarðarsveit og B. Hreiðarsson Samið um áframhaldandi uppbyggingu

Sindri og Hreiðar Hreiðarssynir eigendur B. Hreiðarsson ehf. ásamt Finni Yngva Kristinssyni sveitars…
Sindri og Hreiðar Hreiðarssynir eigendur B. Hreiðarsson ehf. ásamt Finni Yngva Kristinssyni sveitarstjóra. Mynd á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar

Skrifað hefur verið undir samning milli Eyjafjarðarsveitar og B. Hreiðarsson um áframhaldandi uppbyggingu viðbyggingar við Hrafnagilsskóla og Íþróttamiðstöðina í Eyjafjarðarsveit.

„Framkvæmdin styður við metnaðarfulla uppbyggingu innviða fyrir menntun, heilsu og samveru, þar sem markmiðið er að skapa örvandi og sveigjanlegt náms- og heilsuumhverfi sem nýtist öllum aldurshópum,“ segir á vef Eyjafjarðarsveitar.

Núverandi framkvæmdir tryggja samfellu í námi með því að sameina skólastarf grunn- og leikskóla undir eitt þak. Frá haustinu 2025 mun leikskólinn Krummakot flytjast í nýja viðbyggingu við Hrafnagilsskóla, sem styrkir tengingu milli skólastiga, auðveldar aðlögun og opnar á fjölbreyttara skólastarf

Samhliða verður byggð ný líkamsræktaraðstaða og hreyfisalur við Íþróttamiðstöðina, sem mun nýtast skóla, íbúum og eldri borgurum. Með þessu er lögð áhersla á forvarnir og heilsueflingu sem hluta af daglegu lífi.

Framkvæmdum lýkur í janúar 2027

Viðbyggingin er framhald af fyrri uppbyggingu leikskólans og er næsti áfangi í þróun skólainnviða sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í janúar 2027. „Með betri aðstöðu fyrir nemendur, starfsfólk og samfélagið í heild er tryggt að náms- og starfsumhverfi haldist í takt við síbreytilegar þarfir framtíðarinnar.“

Skólastarf sé hjarta samfélagsins, þar sem börn og ungmenni fá að vaxa og þroskast í hvetjandi umhverfi sem styður námslega, félagslega og líkamlega færni. „Með þessari framkvæmd er ekki aðeins verið að fjárfesta í húsnæði heldur framtíð samfélagsins með menntun, heilbrigði og öflugum innviðum að leiðarljósi.

 

 

Nýjast