20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Ernir og Framsýn Halda samstarfi áfram og vilja tryggja flug um ókomna tíð
Forsvarsmenn Framsýnar og Flugfélagsins Ernis hafa gengið frá áframhaldandi varðandi sölu farmiða á sérstökum kjörum fyrir félagsmenn á flugleggnum Reykjavík – Húsavík / Húsavík – Reykjavík. Samningurinn gildir jafnframt fyrir önnur aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna.
Hækkun í febrúar
Fram að þessu hefur verðið verið kr. 15 þúsund krónur hver flugmiði. Vegna kostnaðarhækkana hjá flugfélaginu hækka miðarnir til Framsýnar í 17.500 krónur en Framsýn mun áfram selja miðana á kostnaðarverði. Hækkunin tekur gildi 1. febrúar 2024.
Samningsaðilar eru sammála um að halda áfram samstarfi sem byggir á því að tryggja og efla flugsamgöngur milli Húsavíkur og Reykjavíkur um ókomna tíð. Eins og kunnugt er hefur ríkt ákveðin óvissa um framtíð flugs milli þessara áfangastaða. Vonir eru bundnar við að því er fram kemur á vefsíðu Framsýnar að hægt verði að tryggja flugið með samstilltu átaki hagsmunaaðila.