Samræður um heilbrigðismál á Norðurlandi.
Fyrr á þessu ári lögðum við í Samfylkingunni af stað í málefnavinnu vegna næstu þingkosninga. Við nálgumst þetta verkefni nú með breyttum hætti, þar sem áhersla er lögð á samtal við sérfræðinga og almenning um allt land. Liður í þessu eru fjörutíu opnir fundir í samstarfi við aðildarfélög flokksins.
Málefnastarf um heilbrigðismál verður helsta áhersla Samfylkingarinnar fram á haust. „Útkoman á að vera verklýsing fyrir næstu ríkisstjórn; forgangsröðun og skýr pólitík; verkefnalisti frá fyrstu 100 dögunum og upp í fyrstu tvö kjörtímabilin í ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar,“ eins og Kristrún Frostadóttir formaður orðaði það í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi fyrr í vor.
Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við gjarnan fá þig með í samtalið.
Við hefjum nú leik hér á Norðausturlandi og verðum með opna fundi miðvikudaginn 12. apríl og fimmtudaginn 13. apríl sem hér segir:
Akureyri – Hótel KEA
miðvikudag kl. 12:00
Dalvík – Berg Menningarhús
miðvikudag kl. 17:00
Siglufjörður – salur Einingar-Iðju
miðvikudag kl. 20:00
Húsavík – Gamli Baukur
fimmtudag kl. 12:00
Þórshöfn – N1 Skálinn
fimmtudag kl. 17:00
Vopnafjörður – Hótel Tangi
fimmtudag kl. 20:00
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest – mætum til leiks!
Logi Már Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Sindri Kristjánsson, í stýrihóp Samfylkingarinnar um heilbrigðismál