Enginn sótti um lóðir við Miðholt
Enginn sótti um fimm fjölbýlishúsalóðir sem auglýstar voru við Miðholt í Holtahverfi á Akureyri, en frestur er runninn út. Um er að ræða fimm lóðir þar sem heimilt er að byggja tveggja hæða fjölbýlishús ásamt kjallara. Gert er ráð fyrir að í hverju húsi verði 6 íbúðir.
Fram kemur í auglýsingu vegna lóðanna að vegna jarðvegsaðstæðna sé talið mikilvægt að uppbygging svæðisins verði unnin með samræmdum hætti og jafnvel þannig að allar lóðirnar verði undirbúnar á sama tíma áður en uppbygging hefst. Lóðunum verður því úthlutað til sama aðila.