27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Engin slasaðist alvarlega þegar rúta fór útaf
Engin alvarleg slys urðu á fólki þegar rúta fór út af Ólafsfjaðrarvegi skammt frá Múlagöngum, Ólafsfjarðarmegin. Mynd á facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi.
Engin alvarleg slys urðu á fólki þegar rúta fór út af Ólafsfjaðrarvegi skammt frá Múlagöngum, Ólafsfjarðarmegin. Hún valt á hliðina. Alls voru 25 farþegar í rútunni auk ökumanns og fararstjóra. Óhappið var um kl. 14.30 í dag.
Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningalið var sent á vettvang. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Menntaskólanum á Tröllaskaga, þangað sem farþegar rútunnar voru fluttir og starfsfólk Rauðakrossins hlúði að þeim.
Lögregla vinnur að rannsókn að tildrögum slyssins á vettvangi. Þetta kemur fram á facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi.