20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Elín Edda Árnadóttir sýnir í Safnahúsinu á Húsavík
Á morgun laugardag opnar Elín Edda Árnadóttir í Safnahúsinu á Húsavík nánar i myndlistasalnum sýningu sína Tímamót CrossRoads. Verkin vann Elín Edda með svörtum kolum og beitir blandaðri tækni á pappír. Ungur drengur færði Elínu Eddu eitt sinn skíði úr hval og hefur það síðan af og til orðið kveikjan að einstökum myndverkum.
Sýningin opnar eins og fyrr sagði á morgun laugardag kl 14 og eru allir velkomnir, léttar veitingar verða í boði.