20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Eimur vex til vesturs
Bakhjarlar Eims, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Samtök sveitarfélaga- og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Norðurorka og Orkuveita Húsavíkur, ásamt Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra undirrituðu í dag samkomulag um inngöngu samtakana í Eim. Eimur hefur það meginmarkmið að bæta nýtingu auðlinda með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi. Nú spannar starfsvæði félagsins allt Norðurland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimi.
Með aðild SSNV nær starfssvæði Eims yfir allt Norðurland. Mikil tækifæri eru fólgin í vexti Eims til vesturs. Landshlutinn er mikil matarkista, með framleiðslu á landbúnaðarvörum og öflugri útgerð. Þá er starfsemi Landsvirkjunar umtalsverð á svæðinu og útlit er fyrir aukna orkuvinnslu á Blöndusvæði í náinni framtíð.
Félagið Eimur var stofnað árið 2016 og hefur sinnt verkefnum sem snúa að fjölnýtingu jarðvarma, stuðningi við nýsköpun, orkuskiptum og innleiðingu hringrásarhagkerfis t.a.m. í iðnaði. Í dag starfa fimm hjá Eimi, og með stækkuninni verða ráðnir tveir nýir starfsmenn með skrifstofu á Norðurlandi vestra. Eimur var fyrirmyndin að stofnun sambærilegra verkefna, Orkídeu á Suðurlandi, Bláma á Vestfjörðum og Eygló á Austurlandi.
Eimur miðar að því að leiða saman fólk og fyrirtæki til samstarfs um tilraunir, rannsóknir og þróunarverkefni á sviði orku-, auðlinda-, og loftslagsmála, meðal annars gegnum alþjóðleg samstarfsverkefni. Þetta er besta leiðin til þess að flytja inn þekkingu á því hvernig aðrar þjóðir takast á við áskoranir samtímans, og sú þekking er svo nýtt til að gera slíkt hið sama hér innanlands.
„Það er mikið gleðiefni að undirrita stækkun á samstarfssvæði Eims yfir á Norðurland-vestra í dag. Við höfum lagt á það áherslu undanfarin tvö ár að styrkja og styðja við nýsköpunarstarfsemi um land allt. Samvinna ráðuneytisins við landshlutasamtökin og Landsvirkjun í svæðisbundnum samstarfsverkefnum um nýsköpun hefur skilað margfalt meira fjármagni inn á svæðin heldur en við höfum sett inn. Það skiptir máli að nýta hugvit og sköpunarkraft heima í héraði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
„Eimur hefur sýnt það í verki á undanförnum árum að góð og vel skilgreind samvinna getur verið lykill að árangri í loftslagsmálum. Með stækkun starfsemi Eims yfir á Norðurland vestra verða til fleiri og fjölbreyttari tækifæri til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar á landsvæðinu. Það er öllum í hag að nýta auðlindir okkar betur, hvort sem þær tengjast orkuvinnslu eða hliðarstraumum iðnaðar og landbúnaðar. Það er mikill fengur að fá SSNV inn í verkefnið, enda eru tækifærin í landshlutanum fjölbreytt og spennandi. Við hlökkum til samstarfsinss,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
„Við erum að stíga mikilvægt skref. Nýsköpun er grundvöllur efnahagslegrar velgengni í nútíma samfélagi. Hugvit einstaklinga er mikilvægasta uppspretta nýsköpunar og hér á Norðurlandi vestra höfum við aðgengi að fjölbreyttum auðlindum sem hægt er að nýta til aukinnar verðmætasköpunar. Með tilkomu Eims inn á svæðið getum við virkjað þau fjölmörgu tækifæri sem hér leynast á markvissari hátt en áður,“ segir Katrín M Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri SSNV.