Dómsmálaráðherra heimsótti Norðurland eystra

Dómsmálaráðherra ásamt Svavari Pálssyni sýslumanni og starfsfólki sýslumanns á Húsavík     Myndir ve…
Dómsmálaráðherra ásamt Svavari Pálssyni sýslumanni og starfsfólki sýslumanns á Húsavík Myndir vefur Stjórnarráðsins

Dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, heimsótti nýverið stofnanir ráðuneytisins á Norðurlandi eystra. Hjá héraðsdómi Norðurlands eystra í Hafnarstræti tók á móti ráðherranum héraðsdómarinn Hlynur Jónsson, í fjarveru dómstjóra Arnbjargar Sigurðardóttur. Ráðherra kynnti sér starfsemi dómstólsins og skoðaði húsakost hans. Héraðsdómur Norðurlands eystra er annasamasti héraðsdómstóllinn utan höfuðborgarsvæðisins og starfa þar að jafnaði tveir dómarar.

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, Páley Borgþórsdóttir, tók á móti ráðherra í lögreglustöðinni við Þórunnarstræti á Akureyri. Lögreglan á Norðurlandi eystra rekur auk þess starfsstöðvar á Húsavík, Þórshöfn, Siglufirði og Dalvík. Tveir sérsveitarmenn hafa starfað á Akureyri en til stendur að fjölga þeim þannig að fjórir sérsveitarmenn starfi norðan heiða. 

Íbúar umdæmisins eru um 32 þúsund talsins í 11 sveitarfélögum og er lengd vegakerfisins um 3.200 km. Í umdæminu eru margir þéttbýlisstaðir og margir vinsælir ferðamannastaðir, auk þess sem mikill fjöldi ferðamanna heimsækir svæðið reglulega. Í máli lögreglustjóra kom fram að málafjöldi hjá embættinu hafi aukist verulega undanfarin ár, mál séu oft orðin alvarlegri, rannsóknir flóknari og viðbúnaður oft þurft að vera meiri. Lögreglustjóri nefndi sem dæmi að á fyrri hluta árs 2023 hefði lögregla vopnast nær fjórfalt oftar en allt árið áður. Hún lýsti áhyggjum manna af verulegri aukningu á ofbeldi og ofbeldishótunum gagnvart lögreglumönnum.

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, Svavar Pálsson, tók á móti ráðherra í Hafnarstræti á Akureyri og síðan á aðalskrifstofu embættisins að Útgarði á Húsavík. Sýslumaður kynnti embættið fyrir ráðherra og fylgdarmönnum hennar og sýndi húsakost á Akureyri sem og á Húsavík. Hjá sýslumanni á Norðurlandi eystra starfa 25 starfsmenn á fimm starfsstöðvum á Akureyri, Húsavík, Siglufirði og Þórshöfn auk viðveru á Dalvík. Fram kom að rekstur allra starfstöðva embættisins byggir á samstarfi eða samrekstri með öðrum ríkisstofnunum eða sveitarfélögum.

Á meðal þeirra sérverkefna sem sýslumannsembættinu hafa verið falin eru greiðsla bóta til þolenda afbrota, meðhöndlun sanngirnisbóta og útgáfa leyfisbréfa til starfsréttinda lögmanna.. Umsjón sérverkefnanna er að mestu leyti sinnt á starfstöð á Siglufirði.

Í heimsókninni spunnust góðar umræður um  eflingu sýslumannsembættanna með auknum flutningi verkefna á grundvelli góðrar reynslu. Jafnframt vaxandi tækifærum til stafrænnar vinnslu opinberra verkefna í þágu hagræðingar í ríkisrekstri.

Frá þessu er sagt á vef Stjórnarráðsins

Jóhannes Sigfússon og Skarphéðinn Aðalsteinsson aðstoðaryfirlögregluþjónar, Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra.

Nýjast