Dauðsfall á SAk ekki rakið til Covid eins og áður var talið
Sjúkrahúsið á Akureyri tilkynnti á mánudag um dauðsfall vegna Covid-19 hafi orðið á Sjúkrahúsinu á Akureyri sl. helgi. Það væri fyrsta dauðsfallið vegna faraldursins á SAk.
Nú hefur SAk tilkynnt að dauðsfallið sé ekki rakið til Covid-19 sjúkdómsins.
„Tilkynnt var 21. febrúar sl. að sjúklingur hafi látist á SAk vegna Covid-19. Í ljósi skilgreininga á andláti af völdum Covid-19 sem var gefin út af embætti landlæknis 22. febrúar og yfirferð sjúkraskrárgagna í framhaldi af því þá er ekki talið að Covid-19 hafi átt afgerandi þátt í andláti þessa einstaklings og það eigi því ekki að skilgreina sem andlát vegna faraldursins. Er þetta hér með leiðrétt og beðist velvirðingar á þessu ásamt því að aðstandendum er vottuð samúð,“ segir í tilkynningu á vef Sak.