20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Dansað kringum jólatré í Kjarnaskógi í dag
Eins og allir vita eiga jólasveinarnir heima í Kjarnaskógi, rétt hjá ærslabelgnum á Birkivelli. Í samstarfi við þá og Félag eldri borgara á Akureyrir býður Skógræktarfélag Eyfirðinga öllum börnum sem leið eiga um Kjarnaskóg i dag sunnudaginn 17.desember að dansa kring um jólatréð við grillhúsið á Birkivelli kl. 16.
Á vígsludegi Birkivallar árið 2017 var rauðgrenijólatrénu fína plantað gagngert til að dansa í kring um það í fyllingu tímans. Því hefur nú vaxið fiskur um hrygg og tímabært að það fái að sinni hlutverki sínu
Þar verður dansað kring um jólatréð undir styrkri leiðsögn reynslubolta í jóladansi og jólasveinarnir okkar, þeir Hurðaskellir og Kjötkrókur líta við með karamellu og köngul í poka. Hvur veit nema þeir taki líka lagið og sýni nýju danssporin sem þeir undanfarið hafa æft af kappi upp við Súlurætur !
Birkibandið flytur svo fallegu jólalögin og hægt verður að ylja sér við eldinn, þiggja kakó, ketilkaffi og piparkökur.
„Aðgangur að sjálfsögðu ókeypis eins og alltaf en þið verðið að klæðast eftir aðstæðum, í desember er allra veðra von á Akureyri og besta veðrið í Kjarna
Fjölmargir nýta göngu, hjóla og skíðaleiðir í Kjarnaskógi sér til heilsubótar á degi hverjum. Við lítum á þetta sem venjulegan dag í skóginum okkar en langar að gera þessa jólatrésskemmtun að árlegum viðburði. Hvetjum foreldra, afa og ömmur osfrv til að njóta útivistar með börnunum úr fjölskyldunni í aðdraganda jóla, staldra við stutta stund á Birkivelli, fá sér snúning kring um jólatréð og kankast aðeins á við jólasveinana á leið ykkar um skóginn,“ segir í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Eyjafirðinga. Best er að leggja á bílastæðinu neðan við strandblakvellina en þaðan verðar skilti sem vísa í rétta átt að leikvellinum á Birkivelli.