Vilja Kjalveg aftur á dagskrá

Njáll Trausti Friðbertsson/mynd karl eskil
Njáll Trausti Friðbertsson/mynd karl eskil

„Við erum að undirbúa kynningarfund á Akureyri, þar sem Norðlendingar verða hvattir til þátttöku í undirbúningi að lagningu  nýs vegar um Kjöl,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson varabæjarfulltrúi á Akureyri. Hann segir að Sunnlendingar séu mjög áhugasamir um að kanna þennan möguleika til fullnustu. „Þetta er mikið hagsmunamál fyrir Norðlendinga og þess vegna ætlum við að boða til opins kynningarfundar á næstunni hérna fyrir norðan.“

Einkaframkvæmd

„Ég er viss um að fjárfestar koma til með að líta á þetta sem áhugavert og arðsamt verkefni. Við eigum hiklaust að taka nýjan Kjalveg aftur á dagskrá og kanna málið til hlítar.“

 

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

karleskil@vikudagur.is

Nýjast