Hjartalaus jól
Stór hluti búnaðarins skemmdist í fyrra, enda var tíðarfarið afar óhagstætt. Við viljum gjarnan endurnýja búnaðinn og að hann verði traustari en sá gamli. Allur undirbúningur tekur tíma og því miður verður ekkert sláandi hjarta í Vaðlaheiðinni þessi jólin, gamli búnaðurinn er einfaldlega úr sér genginn, segir Davíð Hafsteinsson hjá Rafeyri á Akureyri. Hjartað sem sett hefur verið upp í Vaðlaheiði undanfarin ár er á stærð við fótboltavöll.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags í dag