Byggja upp alþjóðlega rannóknarmiðstöð i eldfjalla- og orkurannsóknum í Kröflu.

Skrifað undir samning sem tryggir fjármögnun KMT næstu tvö ár.
Skrifað undir samning sem tryggir fjármögnun KMT næstu tvö ár.

Samkomulag hefur verið undirritað sem tryggir fjármögnun fyrirtæksins Krafla Magma Testbed, KMT til tveggja ára.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Orkuveitan og KMt eru aðilar að samkomulaginu. Samkomulagið markar ákveðin tímamót fyrir KMT þar sem Orkuveitan gengur til liðs við verkefnið, auk þess sem áframhaldandi stuðningur frá stjórnvöldum og Landsvirkjun er tryggður.

KMT er frumkvöðlaverkefni sem miðar að því að byggja upp alþjóðlega rannsóknarmiðstöð í eldfjalla- og orkurannsóknum í Kröflu sem verður einstök á heimsvísu. Verkefnið byggir á fyrstu djúpborunarholunni sem boruð var í Kröflu árið 2009 þar sem borað var óvænt í kviku á 2,1 km dýpi. Holan reyndist vera allt að tíu sinnum öflugri en meðal vinnsluholan í Kröflu og fljótlega var ljóst að mikil tækifæri fólust í þessari uppgötvun.

Einstök aðstaða til eldfjallarannsókna

Markmið KMT er að þróa tækni til að nýta þessa gríðarlegu orkumöguleika með hönnun næstu kynslóðar jarðhitahola sem þola þann mikla hita og þrýsting sem liggur næst kvikuhólfum. Verkefnið gengur einnig út á að skapa einstaka aðstöðu til eldfjallarannsókna þar sem vísindamenn munu í fyrsta skipti fá beinan aðgang að kviku. Möguleikarnir sem í því felast geta breytt skilningi r á hegðun eldfjalla og er það von vísindamanna KMT að hægt verði að þróa aðferðir til að stórbæta eldgosaspár.

Tækifærin með verkefninu eru gríðarleg og ljóst að afleidd áhrif á samfélagið verða mikil segir á vefsíðu Þineyjarsveitar þar sem þetta kemur fram en sveitarfélagið fagnar fagnar áfanganum.

Nýjast