Blóðskilunardeild SAk fær góða gjöf

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sólveig Tryggvadóttir, Sigríður M. Gamalíelsdóttir og Sigurlína…
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sólveig Tryggvadóttir, Sigríður M. Gamalíelsdóttir og Sigurlína G. Jónsdóttir.

Í dag, 12. júní, fékk blóðskilun SAk gjöf til minningar um Svölu Tómasdóttur. Greint er frá þessu á vef Sjúkrahússins á Akureyri.

Svala var í blóðskilun í rúm 3 ár en hún lést 23. desember 2023. Það voru skólasystur Svölu frá Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði sem gáfu gjöfina.

Gjöfin innihélt hitateppi fyrir skjólstæðinga og örbylgjuofn til að hita grjónapoka á axlirnar ásamt hitapúða fyrir axlir handa starfsfólki.

,,Þessi gjöf mun nýtast okkar fólki mjög vel og erum þakklát fyrir velvild og hlýhug," segir Sólveig Tryggvadóttir verkefnastjóri á blóðskilun.

Nýjast