20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Bleiki dagurinn er i dag.
Bleiki dagurinn er í dag en dagurinn er hápunktur árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins. Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og er haldinn hátíðlegur um land allt.
Á deginum hefur skapast sú skemmtilega hefð að bera Bleiku slaufuna, vera í bleiku,í stuttu máli eins mikið bleikt og mögulegt svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni fyrir stuðningi og samstöðu.
Starfsfólkið á skrifstofu Einingar Iðju lét ekki sitt eftir liggja og mætti að sjálfsögðu klætt til samræmis við daginn eins og sagt er frá á heimasíðu félagsins www.ein.is