Bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar hefjast í dag

Bílasýning Bílaklúbbs Akureyrar  er að margra mati hápunktur Bíladaga, þessi glæsilegi Volvo prýddi …
Bílasýning Bílaklúbbs Akureyrar er að margra mati hápunktur Bíladaga, þessi glæsilegi Volvo prýddi sýninguna 2021 Mynd BA

Hinir árlegu Bíladagar  Bílaklúbbs Akureyrar hefjast í dag og er óhætt að segja að boðið verði upp á fjölbreytta dagskrá.  Um þessar mundir eru  50 ár liðinn frá stofnun  Bílaklúbbs Akureyrar  og má segja að afmælisbarnið sé i fínu formi.  Keppnisaðstaðan er eins og best verður á kosið og  starfið er gott.

Stjórnendur Bíladaga standa fyrir öflugri gæslu á tjaldsvæði Bíladaga og á viðburðum hátíðarinnar. Bætt verður verulega í löggæsluna þessa helgi og verða lögreglumenn á vakt bæði á merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn umhverfismiðstöðvar eru langt komnir með að setja upp hraðahindranir víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og háskalegan hraðakstur sem er að sjálfsögðu bannaður.

Vart hefur orðið við glannaakstur á Bíladögum fyrri ára en slíkur akstur er ólöglegur og samræmist engan veginn siðareglum Bíladaga sem höfuðáhersla verður lögð á sem fyrr að allir virði. Hart verður tekið á þeim brotum sem kunna að koma upp og gildir þá einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.

Tjaldsvæði Bílaklúbbsins verður opnaði í gær  miðvikudaginn 12. júní og verður opið til þriðjudagsins 18. júní. 18 ára aldurstakmark er inn á tjaldsvæði Bíladaga og er svæðið opið öllum gestum Bíladaga en ekki aðeins þeim sem keypt hafa passa á alla viðburði Bíladaga. 

Fjölskyldutjaldsvæðið að Hömrum er opið um bíladaga líkt og alla daga ársins. Tjaldsvæðið að Hömrum er fyrst og fremst ætlað fjölskyldum og aðgangi stýrt inn á svæðið miðað við það. Aukin gæsla verður þessa helgi og gerðar eru ríkar kröfur til tjaldgesta um að næði sé virt á svæðinu svo bæði börn og fullorðnir geti notið dvalarinnar. 18 ára aldurstakmark er inn á tjaldsvæðið á Hömrum og yngri einstaklingum sem ekki verða í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum verður vísað frá. Það dugar ekki að vera í fylgd með einhverjum sem er eldri en átján ára.

Fjölskyldutjaldsvæðið við Hrafnagil verður lokað fyrir 30 ára og yngri frá miðvikudeginum 12. júní til mánudagsins 17. júní. Þá verður hliðvarsla og ströng gæsla til að stjórna aðgengi að svæðinu.

Sjálfa dagskrá Bíladaga má svo sjá hér fyrir neðan.

13. júní: Brekkusprettur (Hillclimb) keppni hefst 19:00

(Brekkursprettur er aksturskeppni sem gengur út á akstur á lokaðri leið þar sem keppt er um hver fer á sem stystum tíma frá ráslínu til endamarks. Aðeins eitt ökutæki er á akstursleið hverju sinni. Eitt af skilyrðunum er að vera í bíl sem er búinn öryggisbúri fyrir ökumann).

14. júní: Auto-x keppni hefst kl. 9:30

14. júní: Drift Keppni hefst kl. 13

14. júní: Bílalimbó keppni hefst kl. 21

15. júní: Götuspyrna keppni hefst kl. 13

15. júní: Hávaðakeppni (2step)hefst kl. 20

16. júní: Sandspyrna keppni hefst kl. 13

16. júní: Burn-out keppni hefst kl. 20.30

17. júní: Bílasýning í Boganum kl. 10-18

*Birt með fyrirvara um breytingar

 


Athugasemdir

Nýjast