13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Betri Bakkafjörður styrkir tíu samfélagseflandi verkefni
Í gær, miðvikudag fór fram úthlutun styrkja úr Frumkvæðissjóði Betri Bakkafjarðar fyrir árið 2022. Þá fór einnig fram undirritun samfélagssáttmála milli íbúa við Bakkaflóa, Langanesbyggðar og Byggðastofnunar vegna byggðar við Bakkaflóa.
Tíu samfélagseflandi verkefni styrkt á Bakkafirði
Alls voru 8,8 milljónum króna úthlutað til tíu samfélagseflandi verkefna á árinu 2022.
Auglýst var eftir umsóknum í nóvember sl., sautján umsóknir bárust um styrki að upphæð kr. 42,9 milljónir. Til úthlutunar er fjármagn að upphæð kr. 7.000.000 krónur millj. sem koma í gegnum verkefnið Brothættar byggðir fyrir árið 2022, auk þess kr. 1.800.000 sem verkefnisstjórn hefur innkallað frá fyrri úthlutunum. Alls er því úthlutað 8.800.000 krónum. Styrkirnir eru hluti af verkefni Byggðastofnunar, Brothættar byggðir.
Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem hlutu styrki að þessu sinni. Verkefni til að mynda um orkunýtingu, sögusýningu, handverksfyrirtæki, markaðsþjónustu, og menningarhátíðir. Markmiðið með þessum verkefnum er að styrkja innviði samfélagsins við Bakkaflóa, skapa atvinnu og fjölga fólki á svæðinu í samræmi við stefnumótun fyrir verkefnið sem samþykkt var á íbúafundi haustið 2019.
Verkefnið Brothættar byggðir miðar að víðtæku samráði og því að virkja þekkingu og getu íbúa byggðarlaga til að móta framtíðarsýn, markmið og lausnir. Enn fremur að virkja frumkvæði og samtakamátt íbúa og auka vitund þeirra um eigin þátt í þróun samfélagsins.