Benedikt Búálfur í sjónvarpið

Benedikt Búálfur er á leið í sónvarp Símans
Benedikt Búálfur er á leið í sónvarp Símans

Fjölskyldusöngleikurinn Benedikt búálfur, sem Leikfélag Akureyrar hefur sýnt í Samkomuhúsinu, verður sýndur í Sjónvarpi Símans fyrir jólin. Sýningin hefur hlotið dæmalausar vinsældir og hefur nú verið tekin upp af fagfólki fyrir komandi kynslóðir að njóta.

Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar segir afar dýrmætt að þessi vinsæla sýning sé tekin upp af reynsluboltum í kvikmyndabransanum. „Þannig lifir hún áfram um ókomna tíð næstu kynslóðum til yndis og ánægju. Það er er líka viðurkenning á gæðum sýningarinnar að Síminn hafi áhuga framleiða hana og sýnir metnað hans fyrir íslensku menningarefni fyrir börn.“

Benedikt búálfur verður sýndur hjá Símanum í takmarkaðan tíma og frumsýndur rétt fyrir jólin. „Við erum stolt að vita að sýning í leikhúsi sem alla jafna er list augnabliksins sé gerð ódauðleg og erum þess fullviss að útkoman gerir sýningunni góð skil,“ segir Marta.

Aðeins örfáar sýningar eru eftir af söngleiknum. Miðasala er á mak.is.

 

Nýjast