Beina linsunum að landsliðsmönnum frá landsbyggðunum
Nýr þáttur á N4 þar sem fjallað verður um þá landsliðsstráka frá landsbyggðunum sem komust í lokahóp HM í knattspyrnu í Rússlandi fer í loftið fimmtudaginn 14. júní. Þættirnir verða alls fjórir og í hverjum þeirra verða tveir landsliðsmenn teknir fyrir.
Umsjónarmenn eru Skúli Bragi Magnússon dagskrárgerðarmaður og Árni Rúnar Hrólfsson kvikmyndatökumaður.
„Við fáum að kynnast strákunum með augum bæjarfélagsins þaðan sem þeir koma. Foreldrar, ömmur og afar, bræður og systur, vinir og þjálfarar segja frá uppvaxtarárum og karakter strákanna. Við fengum frábærar móttökur við gerð þáttanna, allir voru tilbúnir til að hjálpa okkur við að gera skemmtilegt sjónvarp og síðast en ekki síst upplýsandi. Í þessum þáttum kemur margt nýtt fram, sem til þessa hefur ekki verið nema á vitorði þeirra nánustu. Við renndum í raun og veru nokkuð blint í sjóinn, en eftir því sem líður á vinnsluna erum við sannfærðir um að þættirnir komi til með að vekja athygli,“ segja þeir félagar Skúli Bragi og Árni Rúnar.
Landsbyggðastrákarnir í þáttunnum eru Björn Bergmann Sigurðarsson frá Akranesi, Jón Daði Böðvarsson frá Selfossi, Arnór Ingvi Traustason og Samúel Kári Friðjónsson frá Reykjanesbæ, Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason frá Akureyri, Hólmar Örn Eyjólfsson frá Sauðárkróki og Alfreð Finnbogason frá Grindavík.
Fyrsti þátturinn verður frumsýndur fimmtudaginn 14. júní klukkan 20:30. Næstu þættir verða á dagskrá 18., 19. og 20. júní.