Barna- og unglingageðteymi Sjúkrahússins á Akureyri færist til HSN

Þjónusta sú sem barna- og unglingageðteymi (BUG) hefur veitt á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk.) mun færast til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) frá og með 1. október næstkomandi. Markmiðið með þessari tilfærslu er að efla þjónustu og samfellu í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á Norður- og Austurlandi undir hatti HSN. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSN.

Í tilkynningunni segir að á  undanförnum árum hafi átt sér stað markviss uppbygging á sálfélagslegri þjónustu HSN. Þar sé í dag rekið öflugt teymi fagfólks sem þjónustar bæði börn og fullorðna á Norðurlandi.

Þá er það áréttað að áfram muni SAk. sinna bráðaþjónustu fyrir börn og unglinga á svæðinu og munu SAk. og HSN koma á verklagi um samvinnu vegna bráðamála sem koma beint til SAk.

,,Undirbúningur að framkvæmd yfirfærslunnar er þegar hafinn og er með þeim hætti að ekki verði rof í geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni á Norður- og Austurlandi," segir í tilkynningunni.


Athugasemdir

Nýjast