20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Bæjarráð Akureyri um þyrlu fyrir norðan
Bæjarráð Akureyrar fagnar framkominni þingsályktun um fasta starfsstöð á Akureyri fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Að mati bæjarráðs er þetta skynsamleg og löngu tímabær ráðstöfun til þess að tryggja betur öryggi fólks víða um land. Ekki er æskilegt að hafa allar þyrlur gæslunnar á sama svæðinu með tilliti til óveðurs, náttúruhamfara og annarra skakkafalla auk þess sem slíkt fyrirkomulag tryggir illa fullnægjandi þjónustu við fjarlægari landshluta, einkum Norður- og Austurland.
Mikil tækifæri felast í tengingu við sjúkraflugið sem er staðsett á Akureyri og augljós samlegðaráhrif þegar kemur að mönnun og þjónustu við sjúkraflug og þyrlu.