Aukið við húsnæði heilsugæslunnar í Sunnuhlíð á Akureyri

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurl…
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands Mynd HSN

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur heimilað Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) að taka á leigu um 250 fermetra húsnæðis í Sunnuhlíð og skapa þannig aukið rými fyrir starfsemi heilsugæslunnar sem þar er til húsa. Þar verður einnig starfsstöð Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands sem hefur verið með aðsetur í gömlu heilsugæslustöðinni við Hafnarstræti. 

Húsnæðið aukið úr 1.800 fermetrum í 2.050

Ný heilsugæslustöð HSN í Sunnuhlíð á Akureyri var formlega tekin í notkun í mars síðastliðnum í húsnæði sem er sérhannað fyrir heilsugæsluþjónustu. Óhætt er að segja að með tilkomu hennar hafi orðið bylting varðandi alla aðstöðu starfsfólks og þeirra sem þangað sækja þjónustu. Með auknu húsnæði í Sunnuhlíð verður unnt að flytja þangað ýmsa starfsemi sem hefur verið rekin í leiguhúsnæði annars staðar í bænum og styðja þannig enn betur við starfsemina. 

Áfram er stefnt að því að opna aðra starfsstöð heilsugæslu HSN á Akureyri og er unnið að því af hálfu FSRE (Framkvæmdasýslunni Ríkiseig

Frá þessu segir á heimasíðu Stjórnarráðsins

Nýjast