Alþýðusamband Norðurlands Ósk nýr formaður
Ný stjórn var kjörin á þingi Alþýðusambands Norðurlands á Illugastöðum í fyrri viku. Ósk Helgadóttir, frá Framsýn, var kjörin nýr formaður til næstu tveggja ára. Með henni í stjórn eru Jóhannes Jakobsson, frá Byggiðn, sem er varaformaður stjórnar, og Vigdís Edda Guðbrandsdóttir, frá Samstöðu, sem er ritari stjórnar.
Alls sóttu 82 fulltrúar, frá öllum stéttarfélögum á Norðurlandi þing Alþýðusambands Norðurlands.