Alþjóðadagur sykursýki er í dag
14.nóvember ár hvert er alþjóðlegur dagur sykursýki. Sykursýki er langvinnur sjúkdómur sem leiðir til of mikils sykurs (glúkósa) í blóðinu þegar líkaminn getur ekki brotið niður sykur á eðlilegan hátt.
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri er einstaklingum með sykursýki sem uppfylla ákveðin skilyrði sinnt á innkirtlamóttöku. Þeir skjólstæðingar koma í viðtöl á 3 – 6 mánaða fresti þar sem farið er yfir meðferðina og árangur hennar, veittur stuðningur og fræðsla sem við á. Árlega er svo stærri skoðun þar sem skimað er fyrir ákveðnum áhættuþáttum. Þá er skjólstæðingum einnig fylgt eftir með símtölum eða tölvupóstum eftir því sem við á.
Starfsfólk innkirtlamóttöku er í góðu samstarfi við fyrirtæki sem framleiða og selja sykurnema og insúlíndælur. Það aðstoðar skjólstæðinga að setja upp þessi tæki og sinnir fræðslu og ráðgjöf fyrir inniliggjandi skjólstæðinga ásamt starfsfólki SAk og annarra heilbrigðisstofnanna
Frá þessu er sagt á heimasíðu SAk