20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Alli í Sjöfn fallinn frá
Aðalsteinn Jónsson, Alli í Sjöfn, fyrrum forstjóri Efnaverksmiðjunnar Sjafnar á Akureyri lést 6. des. síðastl. á 96. aldursári. Hann lærði efnaverkfræði í Glasgow í Skolandi á sjötta áratugnum og kom til Akureyrar 1958. Hann kom málningarframleiðslu Sjafnar á laggirnar og var forstjóri fyrirtækisins um áratuga skeið eða þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Aðalsteinn var virkur í félagsmálum á Akureyri, lék knattspyrnu með KA fyrir margt löngu, var í stjórn handknattleiksdeildar félagsins um tíma og stundaði laxveiði og golf af mikilli ástríðu. Þá söng hann oft einsöng með karlakórnum Geysi og var meðlimur kórsins í fjölda ára. Eiginkona hans var Patricia Ann Jónsson. Aðalsteinn eignaðist 7 börn og eru afkomendur hans fjölmargir.