20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Aðgerðarstjórn almannavarna fær stærra húsnæði
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, Páley Borgþórsdóttir sem skrifaði undir fyrir hönd almannavarnanefndar og Halldór Halldórsson formaður Súlna björgunarsveitar
Mynd Facebooksíða Lögreglunnar á Norðurlandi eystra
Aðgerðarstjórn almannavarna í umdæmi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur skrifað undir nýjan húsaleigusamning
Aðgerðarstjórn verður sem fyrr í húsnæði Súlna björgunarsveitar að Hjalteyrargötu 12 Akureyri. Aðstaðan mun færast til í húsnæðinu þar sem hún fær stærra og hentugra rými. Reiknað er með að ný aðstaða verði til seinnipart sumars eða byrjun hausts.