10% samdráttur á umferð um Vaðlaheiðargöng í júni

Vaðlaheiðargöng
Vaðlaheiðargöng

Um 10% samdráttur var á júní umferð um göngin miðað við árið í fyrra.  Meðalumferð um göngin var 2.129 ferðir á dag. Hlutfall umferðar um göngin af heildarumferð er 73% sem er 3% aukning frá því í fyrra þegar 70% umferðar fór göngin.

Samdráttur á umferð um Víkurskarðið var þó en meiri eða 21% og má helst rekja til þess að í byrjun júní var alls ekkert ferðaveður og var skarðinu t.d. lokað í 4 daga vegna ófærðar.

Uppsöfnuð heildarumferð frá áramótum er 3% minni en sama tíma í fyrra.

 


Athugasemdir

Nýjast