20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
„Spennandi áskorun“
„Fyrir sveitarstjóra sem er metnaðargjarn þá horfir hann hingað því þetta er staðurinn til að fara á að mínu mati," segir Ásthildur. Mynd/Þröstur Ernir.
Ásthildur Sturludóttir tók við starfi bæjarstjóra á Akureyri á haustdögum og hefur undanfarnar vikur og mánuði verið að koma sér inn í starfið. Hún segir mörg tækifæri vera til staðar á Akureyri til að efla samfélagið og fjölga þannig íbúum bæjarins.
Ásthildur fór að ráðum eiginmannsins þegar hún sótti um starfið og segir fjölskylduna ánægða með flutningana norður. Vikudagur heimsótti Ásthildi í Ráðhúsið en nálgast má ítarlegt viðtal við bæjarstjórann í prentútgáfu blaðsins.