20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Nýtt Sportveiðiblað komið út
Út er komið 2 tbl 42 árgangs af Sportveiðiblaðinu, meðal efnis er viðtal við Jón Þorstein Jónsson sem segir líflegar sögur af ferð í Svalbarðsá í Þistilfirði þá frægu stórfiska á svo dæmi sé tekið en annars eru sögurnar margar og góðar hjá honum.
Góð staðarlýsing er í blaðinu á þeim ,,systrum” Staðarhólsá og Hvolsá í Dölunum, gullfallegar ár sem undirritaður hefur heimsótt í eftirminnilegum túr. Það er Rögnvaldur Guðmundsson sem skrifar leiðsögnina en hann þekki mjög vel til á þessum slóðum.
Brynjar Úlfur Morthens segir frá fyrstu ferð sinni í Laxá í Aðaldal en hann gjörsamlega féll fyrir ánni og umhverfi hennar lái honum hver sem vill.
Lokakastið á svo Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Blaðið er 116 bls. prentað á vandaðan pappír sem skilar myndum afar vel.