Góðverkin kalla í Freyvangsleikhúsinu

„Er kominn tími á ljúfa leikhússtund sem skilur ekkert eftir sig nema skaddaðar hláturtaugar?“ segir í tilkynningu frá Freyvangsleikhúsinu sem setur á svið gamanleikritið Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason úr Ljótu hálfvitunum. Leikstjórar eru Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, sem sjálfur er Ljótur hálfviti í hjáverkum. Í smábænum Gjaldeyri á Ystunöf starfa ofvirk góðgerðarfélög, Dívansklúbburinn, Lóðarís og Kvenfélagið Sverðliljurnar, sem fyllt hafa sjúkrahús bæjarins með stanslausum tækjagjöfum, lækninum til mikillar armæðu. Góðgerðarkapphlaupið stigmagnast og nær hámarki á 100 ára afmæli sjúkrahússins.

„Rómantísk, stórundarleg, en umfram allt bráðfyndin atburðarrás með söngvum sem eru mátulega vel frambornir af góðgerðarfélögunum þremur,“ segir í tilkynningu.

Leikritið verður frumsýnd þann 10. Mars og verða sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld í mars og apríl. Hægt er að nálgast miða á freyvangur@gmail.com og tix.is.

 

Nýjast