„Forréttindi að starfa við áhugamálið"
„Þetta hefur gengið í bylgjum og ég hef upplifað peningaleysi út í eitt í mörgum verkefnum. Stundum hef ég verið á þeim buxunum að gefast hreinlega upp,“ segir Baldvin Z m.a. í ítarlegu viðtali í Vikudegi.
Akureyringurinn Baldvin Z er einn af okkar fremstu leikstjórum en nýjasta mynd hans, Lof mér að falla, hefur vakið mikla athygli og umtal og fengið gríðarlega góða aðsókn í kvikmyndahúsum. Baldvin Z fékk snemma áhuga á kvikmyndagerð og var ekki nema 11 ára gamall þegar hann vissi hvaða braut hann ætlaði að feta í lífinu.
Vikudagur sló á þráðinn til Baldvins Z og spjallaði við hann um nýju kvikmyndina og forvitnaðist um líf og starf kvikmyndagerðarmannsins en viðtalið má nálgast í prentútgáfu blaðsins.