20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
„Fordæmalaus velgengni hljómsveitarinnar ævintýri líkust“
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sló botninn í tónleikárið með flutningi stórvirkisins sem oft hefur verið nefnt drottning allra tónverka, Matteusarpassíu Jóhanns Sebastians Bachs, í Hofi um páskana. Verkið var flutt á tvennum tónleikum þar sem hljómsveitin naut fulltingis Kammerkórs Norðurlands, Hymnodiu og barnakóra.
Þeim fyrri í Menningarhúsinu Hofi á skírdag, þar sem Matteusarpassían var jafnframt frumflutt á Akureyri. „Skemmst er frá því að segja að leikið var fyrir troðfullu húsi og færri komust að en vildu. Að tónleikunum loknum lagði hljómsveitin svo land undir fót og flutti verkið í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa þar sem sömuleiðis var leikið fyrir fullu húsi,“ segir á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar.
Þar segir ennfremur að óhætt sé að segja að, „fordæmalaus velgengni hljómsveitarinnar sé ævintýri líkust og er það nokkuð sem við hjá Menningarfélagi Akureyrar erum ákaflega hreykin af. Á yfirstandandi starfsári hefur verið uppselt á 14 tónleika hljómsveitarinnar. Sveitin hefur á sama tíma jafnframt leikið fyrir ríflega 14.000 tónleikagesti, bæði á Íslandi og í Færeyjum.“
Þrátt fyrir að formleg tónleikadagskrá Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sé nú lokið þetta starfsárið er fjöldi verkefna framundan hjá hliðarsjálfi hljómsveitarinnar, SinfoniaNord, meðal annars við upptökur á kvikmyndatónlist.