Akureyri Sjómannadagurinn 2024 dagskrá

Tökum þátt í hátíðarhöldunum
Tökum þátt í hátíðarhöldunum

Akureyri - dagskrá 2024

Laugardagur 1. júní

kl. 10.00 - 13.00 Sandgerðisbót
Trillukarlar og verbúðareigendur hafa opið hús
Grillað fyrir gesti og gangandi - pylsur og gos
Lúðrasveit Akureyrar leikur sjómannalög
Bryggjurnar verða opnar og bátar til sýnis.
kl. 17.00 Minningarsigling með Húna
Sigling til að minnast þeirra sem farist hafa í hafi.

Sunnudagur 2. júní - Sjómannadagurinn

kl. 08.00 Fánadagur
Bæjarbúar draga fána að hún
kl. 11.00 Sjómannadagsguðþjónusta
Messa í Akureyrarkirkju með þátttöku sjómanna.
Að athöfn lokinni í Akureyrarkirkju verður blómsveigur frá sjómönnum lagður að minnismerki við Akureyrarkirkjugarð á Naustahöfða.
kl. 12.00 - 18.00 Sjómennska, sviti og salt
Gluggainnsetning júnímánaðar í Hafnarstræti 88, vinnustofu Brynju, nefnist Sjómennska, sviti og salt og er helguð sjómennsku eins og nafnið gefur til kynna. Um gluggasýningu er að ræða og er því aðgengileg allan sólarhringinn. Sjá nánar hér
kl. 13.30 Hópsigling smábáta og Húni II.
Brottför frá Sandgerðisbót kl. 13.30. Húni siglir með bæjarbúa frá Fiskihöfn (austan við Hagkaup) í hópsiglingu smábáta, selgskúta og sjóbretta.
Allir velkomnir! Ef þörf er á verður einnig boðið upp á fleiri siglingar með Húna (kl. 14.15 og 15.15)
kl. 11.00 - 15.00 Siglingaklúbburinn Nökkvi
Opið hús í félagsaðstöðu klúbbsins við Höpfnerbryggju.


Athugasemdir

Nýjast