Angelika Haak fjallar um listsköpun sína
Þriðjudaginn 11. mars kl. 17-17.40 heldur þýska myndlistarkonan Angelika Haak Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Video Art – Video-Portraits. Aðgangur er ókeypis.
Í fyrirlestrinum, sem fer fram á ensku, fjallar Haak um listsköpun sína þar sem vídeó-portrett skipa stóran sess. Verk hennar dansa á mörkum málverks, ljósmyndar, skúlptúrs og vídeólistar. Fókusinn er á fólk og hugmyndir þeirra, hugsanaferli og hugsjónir. Í verkunum kannar Haak ítrekað uppbyggingu og afbyggingu sjálfsmyndar.
Angelika Haak er fædd 1971 í Stuttgart í Þýskalandi, en býr nú og starfar í Cologne. Hún vinnur mest með blandaða tækni, sérstaklega vídeó. Hún hefur tekið þátt í alþjóðlegum sýningum í Þýskalandi og víðar. Haak er menntuð í listum og skúlptúr frá Nürtingen og Düsseldorf. Einnig nam hún heimspeki, þjóðfélagsfræði og mannfræði við Eberhard-Karls háskólann í Tübingen.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Gilfélagsins. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru myndlistarkonan Brynja Baldursdóttir og fulltrúar Myndlistarfélagsins.