Yfirbreiðslur draga verulega úr orkutapi sundlauga
mth@vikubladid.is
„Það eru áskoranir framundan í rekstri hitaveitna á Íslandi og samfélagið allt þarf að leita leiða til að vera ábyrg í orkunýtingu,“ segir Gunnur Ýr Stefánsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra Norðurorku en félagið hefur fengið verkfræðistofuna Eflu til að gera athugun á varmatapi sundlauga og áhrif þess að nota yfirbreiðslur þegar laugarnar eru ekki í notkun.
Áætlað er að Sundlaug Akureyrar gæti sparað um 3.500 rúmmetra af hitaveituvatni á mánuði yfir vetrartímann með yfirbreiðslu yfir báðar laugar á næturnar. En samsvarandi sparnaður fyrir laugina á Þelamörk er áætlaður um 1.400 rúmmetrar á mánuði. Sundlaugin á Hrafnagili hefur notað yfirbreiðslu um árabil og hefur sú reynsla gefið góða raun.
Sundlaugar eru víða á meðal stærstu viðskiptavina hitaveitna og því til mikils að vinna að draga úr orkutapi sem leiðir til minni notkunar á hitaveituvatni í laugunum. Kuldi og vindur eru stærstu áhrifaþættirnir í varmatapi og gefa reynslutölur til kynna að um geti verið að ræða allt að 33% sparnað miðað við hefðbundinn opnunartíma sundlauga. Því er ljóst að stór ávinningur getur falist í því að nota yfirbreiðslur og mikilvægt er að velja vandaðan búnað sem krefst ekki mikillar vinnu starfsfólks.
Aukin notkun
Um 90% heimila á Íslandi hafa aðgang að jarðhitavatni sem er einstök auðlind. Mikil aukning er í heitavatnsnotkun í samfélaginu, langt umfram fólksfjölgun. Því hefur hitaveitan þurft að vera á fullum afköstum yfir köldustu vetrarmánuðina og verið komin að þolmörkum. „Mikilvægt er að samhliða aukinni öflun sé unnið frekar með notkunarhliðina og að allra leiða sé leitað til ábyrgrar orkunotkunar,“ segir á vefsíðu Norðurorku.