Völsungur og PCC framlengja samstarfssamning til tveggja ára
Íþróttafélagið Völsungur og PCC BakkiSilicon hafa undirritað áframhaldandi samstarfssamning til næstu tveggja ára.
Í samkomulaginu felst meðal annars að knattspyrnuvöllurinn og íþróttahöllin á Húsavík munu bera nafn PCC en Völsungur leggja áherslu á að virkja starfsfólk PCC og börn þeirra til íþróttaiðkunar. Sérstök áhersla verður lögð á íþróttaiðkun barna af erlendum uppruna.
Við undirritun samningsins komu fulltrúar PCC Bakki Silicon í heimsókn í vallarhúsið fimmtudaginn 7. desember og voru með kynningu á starfsemi fyrirtækisins fyrir fimmtudags gönguhóp Völsungs.
,,Það er gríðarleg ánægja innan Völsungs með samstarfið við PCC undanfarin tvö ár og það er tilhlökkun að halda því áfram. Fjárstuðningur PCC er gríðarlega mikilvægur í starfsemi félagsins. Þar að auki munum við halda áfram að kynna félagið okkar fyrir nýjum íbúum í samstarfi við PCC með það að markmiði að gera sem flesta virka í starfsemi félagsins. Þess má geta að allar deildir félagsins munu njóta góðs af þessu samstarfi," segir Jónas Halldór Friðriksson, framkvæmdastjóri Völsungs.
,,Það er okkur mikil ánægja að halda áfram stuðningi við það öfluga og mikilvæga starf sem Völsungur sinnir. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra sem búum hér á svæðinu að styðja vel við félagið og starf þess. Samstarfið síðustu tvö ár hafa gengið virkilega vel og við höldum ótrauð áfram. Ég er sérstaklega ánægð með viðbótina í þessum samningi er varðar knattspyrnumót yngstu iðkenda Völsungs, sem mun nú bera heitið Völsungsmót PCC og fyrirtækið verður aðal styrktaraðili mótsins," segir Marella Steinsdóttir, mannauðsstjóri PCC BakkiSilicon.