Vinsælir saltsteinar fyrir búfé framleiddir úr afsalti
mth@vikubladid.is
Ektafiskur á Hauganesi fékk á dögunum styrk úr Uppbyggingasjóði Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi eystra til að vinna að vöruþróun á nýjum saltsteini fyrir búfé. Hann verður með þaramjöli og er nú samvinnu við bændur í nágrenninu verið að þróa vöruna. Elvar Reykjalín framkvæmdastjóri og einn eigenda Ektafisks á Hauganesi væntir þess að hann komi á markað áður en langt um líður.
Á vegum Ektafisks var á liðnu ári unnið að undirbúningi vegna framleiðslu á saltsteini og fór að sögn Elvars bróðurpartur ársins í þróunarvinnu enda vandað til verka. Varan var tilbúin í desember síðastliðnum og má finna saltsteininn í flestum stærstu fóðurverslunum landsins. „Þetta vakið lukku og það er ánægjulegt,” segir hann.
Saltfiskvinnsla Ektafisks á Hauganesi á sér langa sögu sem teygir sig um 100 ár aftur í tímann. Trausti Jóhannesson afi Elvars byrjaði að salt sinn fisk á Hauganesi upp úr árinu 1900. „Þetta var í litlum mæli hjá honum og bara til heimabrúks fyrsta kastið, en framleiðslan jókst smám saman og einkum þegar synir hans, þeir Óli, Sigurður og Jóhannes tóku við,” segir Elvar. Þriðja kynslóðin rekur saltfiskverkum Ektafisks á Hauganesi nú, fjórða kynslóð skilaði sínu að hans sögn og nú er fimmta kynslóð saltfiskverkenda á Hauganesi farin að láta til sín taka.
Óviðunandi að henda því sem hægt er að nýta
Elvar segir að saltið sem notað er til að salta fiskinn komi um langan veg, alla leið frá Túnis. „Þegar fiskur er saltaður er saltið notað tvisvar til þrisvar sinnum en eftir það er þó nokkur hluti saltsins sem kallast afsalt ekki nýtt meir í fiskinn. Því hefur hingað til verið hent að mestu leyti í sjóinn. Umræður um fullnýtingu hafa orðið æ háværari með árunum og því auðvitað algjörlega óviðunandi að henda því sem hægt er að nýta,” segir hann. Í framhaldinu var farið að undirbúa framleiðslu á Ekta bætiefna saltsteini fyrir búfé úr afsaltinu. Elvar segir að þegar saltið komist í snertingu við fiskinn taki það í sig ýmis góð efni. „Við bætum svo í og setjum efni í sem búfé eru nauðsynleg eins og fiskimjöli, hagkalki, magnesium, melassa, seleni og vítamínum.”
Elvar segir að Ektafiskur hafi verið í gagnlegu samstarfi við Nýsköpunarklasann Norðanátt við þróun saltsteinsins og þá muni styrkur Uppbyggingasjóðs koma sér vel fyrir áframhaldandi þróun vörunnar.