20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Ungt fólk er meira en bara meme og sketsar á TikTok
Ungt fólk er meira en bara einn hópur. Ungt fólk samanstendur af mörgum mismunandi hópum, með mismunandi skoðanir, áhugamál og þarfir. Að reyna að ná til þeirra einungis með stuttum sketsum, meme-um og „brain rot “ efni á TikTok er mikil einföldun. Ungt fólk hefur líka áhuga á pólitík, vill fara á dýptina í málum og kynna sér stefnur flokka áður en það mótar sér skoðun. Ungt fólk á betra skilið en efni í litlum gæðum sem er of stutt til að geta talist upplýsandi.
Það getur verið ógnvekjandi að stíga fyrstu skrefin sem kjósandi.
Að mæta á viðburði og ræða við oddvita og þingmenn getur alveg verið stórt skref.
„Þarf ég ekki að vita eitthvað um öll mál til að geta tekið þátt?“
Gleymum því ekki að sérfræðingar í mörgum málum eru oft ungt fólk. Það þarf ekki að vita allt um alla málaflokka til þess að geta tekið þátt í umræðu um pólitík. Ýtum ekki undir efasemdir og vanmátt með því að tala niður til ungs fólks og gera lítið úr þeim sökum reynsluleysis. Við eigum að efla þátttöku ungs fólks í stjórnmálaumræðu því þar er að finna raddir framtíðarinnar.
Hlustum á ungt fólk og miðlum áfram því sem skiptir þau mestu máli
Þegar að við nálgumst ungt fólk og þá sérstaklega fyrstu kjósendur er mikilvægt að við hlustum á þarfir mismunandi hópa og mætum þeim með mismunandi leiðum eftir þörfum hvers og eins.
Samband ungra Framsóknarmanna hefur nú opnað kosningamiðstöð fyrir ungt fólk í Bankastræti 5 sem nefnist xB5. Þar bjóðum við ungt fólk velkomið sem vill mæta og ræða við annað ungt fólk. Þar getur þú mætt og gengið að því sem vísu að vel verði tekið á móti þér. Þar getur þú rætt um það sem skiptir þig máli við annað ungt fólk sem hefur áhuga á pólitík og stjórnmálum. Opið á virkum dögum 15-20 og svo eftir klukkan 20:00 um helgar.
Þá má finna ungt fólk í efstu sætum á listum Framsóknar í öllum kjördæmum. Finnið þau á viðburðum Framsóknar í ykkar kjördæmi og ég get lofað ykkur því að þau munu taka vel á móti ykkur.
Sigríður - gervigreind
Framsókn hefur einnig kynnt til leiks Sigríði, gervigreind Framsóknar sem svarar spurningum um Framsókn út frá stefnumálum flokksins. Mörg höfum við vanist því að spyrja ChatGPT út í hin ýmsu mál, þökk sé Lilju Alfreðsdóttur og hennar ráðuneyti sem hefur staðið að innleiðingu íslenskunnar svo við getum spurt og fengið svör á okkar móðurmáli. Nú getum við á sama hátt spurt Sigríði út í þau mál sem brenna helst á okkur.
Hvað vilt þú vita um stefnu Framsóknar?
Prófaðu að spyrja Sigríði gervigreind, okkur á xB5 kosningamiðstöð ungs fólks eða unga frambjóðendur á listum í þínu kjördæmi. Við viljum heyra hvað brennur á þér!
Höfundur er í framkvæmdastjórn Sambands ungra Framsóknarmanna og í 4. sæti á lista Framsóknar í Norðausturkjördæmi.