Viðurkenningar fyrir árangur í skólastarfi

Verðlaunahafar að lokinni athöfn. Mynd/Akureyri.is
Verðlaunahafar að lokinni athöfn. Mynd/Akureyri.is

Nýverið veitti fræðsluráð Akureyrarbæjar viðurkenningar þeim sem hafa skarað sérstaklega fram úr í skólastarfi. Veitt var 31 viðurkenning í tveimur flokkum. Í flokki nemenda voru veittar 9 viðurkenningar og í flokki starfsfólks/verkefna 22 viðurkenningar. Segir á vef Akureyrarbæjar að markmiðið sé að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert í skólasamfélaginu og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna. Fræðsluráð hefur frá árinu 2010 veitt einstaklingum og/eða stofnunum sem skarað hafa fram úr viðurkenningar við hátíðlega athöfn.

Nöfn þeirra sem hlutu viðurkenningu:

Nemendur:
Eyja B. Guðlaugsdóttir, Naustaskóli
Lobna Kamoune, Brekkuskóli
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir, Brekkuskóli
Arney Elva Valgeirsdóttir, Oddeyrarskóli
Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson, Síðuskóli
Björn Sigurður Kristinsson, Hlíðarskóli
Mahout Ingiríður Matharel, Naustaskóli
Dagur Kai Konráðsson, Naustaskóli
Rakel Arna Steinsdóttir, Síðuskóli

Starfsfólk:
Guðrún Ósk Stefánsdóttir, Iðavöllur
Sigurbjörg Ósk Sigurðardóttir, Iðavöllur
Inga Dís Sigurðardóttir, Giljaskóli – hlaut tvær viðurkenningar
Jóhannes Bjarki Sigurðsson, Oddeyrarskóli
Drífa Þórarinsdóttir, Pálmholti
Arna Benný Harðardóttir, Brekkuskóli
Guðrún Íris Valsdóttir, Brekkuskóli
Sigríður Jóna Ingólfsdóttir, Naustaskóli
Vala Björt Harðardóttir, Naustaskóli
Jórunn Eydís Jóhannesdóttir, Krógabóli
Guðný Rut Gunnlaugsdóttir, Krógabóli,
Lilja Valdemarsdóttir, Krógabóli
Hildur Berglind Búadóttir, Krógabóli
Dýrleif Skjóldal, Hulduheimum, Koti
Sigurrós Karlsdóttir, Oddeyrarskóli
Rakel Óla Sigmundsdóttir, Oddeyrarskóli
Jónas Sigursteinsson, Oddeyrarskóli
Sigrún María Steinsdóttir, Oddeyrarskóli
Þórarinn Torfason, Oddeyrarskóli
Steinunn Línbjörg Ragnarsdóttir, Giljaskóli
Ragnheiður Thelma Ragnarsdóttir, Giljaskóli

 

Nýjast